Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum
Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl.
Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að fólk sætti sig oft við þessi svik og vilji jafnvel ekkert endilega að fólk rannsaki þau. ,,Fólki er oft sama um peninginn af því það eignaðist vin."
Elín segir að áætlað fjárhagstjón Íslendinga vegna slíkra netglæpa hafi verið 427 milljónir króna á fyrsta helmingi þessa árs. Þetta er mikil aukning á milli ára en til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið í fyrra og tæplega 200 milljónum króna árið 2024.
Hugsanlegt er að á milli 80 og 90 prósent slíkra svika megi rekja til Nígeríu. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru glæpahópar í Nígeríu sem sérhæfa sig í Íslandi og tala við íslensk fórnarlömb á íslensku sem líklega er þýdd af gervigreind.
Rætt er við Elínu Agnesi og Alexander Logi Jónsson sérfræðing í netsvikamálum hjá Arion banka. Hann hefur unnið við þetta í tvö ár, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall, og er að verða þekkt nafn hjá þeim sem fylgjast með netsvikamálum í kerfinu. Alexander kannast við það að fólk geti jafnvel sætt við að greiða peninga til svikara fyrir samskipti.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026
- Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 3528. september 2026