Rektorar á rökstólum um framtíð Háskólans á Bifröst
Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, og Ólína Þorvarðardóttir, starfandi rektor, hafa ólíkar hugmyndir um framtíð skólans.
Runólfur telur að skólinn eigi sér ekki lengur tilverurétt sem sjálfstæð menntastofnun á meðan Ólína telur skólann á góðri siglingu sem halda muni áfram.
Runólfur ræðir einnig um ábyrgð sína á stöðu skólans í dag en í rektorstíð hans fór skólinn í mikla skuldsetningu uppbyggingu á fasteignum í Borgarfirði. Hann segir að á þeim tíma hafi sú uppbygging verið jakvæð og rökrétt en ákvarðanir eftirmanna hans hafi kippt fótunum undan rekstrargrundvelli skólans í Borgarfirði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026