Stálin stinn í sjókvíaeldinu og ráðuneytið á milli
Hvað felst í frumvarpi atvinnuvegaráðherra þegar kemur að framtíð sjókvíaeldis á Íslandi?
Ráðuneytið er að segja að því sem tækni í fiskeldi fleytir fram sé líklegt að aðrar sjálfbærari og umhverfisvænni leiðir muni leysa sjókvíaeldi af hólmi. Þess vegna eru fjárhagslegir hvatar í frumvarpinu sem eiga að ýta undir tækninýjungar í fiskeldi.
Þessi tækni er hins vegar ekki tiltæk í dag og þess vegna er ekki hægt að banna sjókvíaeldi eins og hörðustu gagnrýnendur þess krefjast. Sjókvíaeldi skapar störf og tekjur sem ráðuneytið gerir ráð fyrir að þau geti notað til að þróa umhverfisvænni aðferðir við fiskeldi.
Rætt er um lagafrumvarpið við Daníel Jakobsson, forstjóra laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Ísafirði, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026