Stjórnmálafræðingur segir Trump ganga erinda milljarðamæringa á Grænlandi
Hvað er eiginlega á bak við fréttir ásælni Donalds Trumps í Grænland sem Vesturlönd hafa staðið á öndinni yfir síðustu daga?
Ástralski stjórnmálafræðingurinn Page Louise Wilson í Háskóla Íslands segir að skýringarnar fyrir hótunum hans liggi í stjórnmálastöðunni í Bandaríkjunum en ekki í rökum sem snúast um varnar- eða utanríkismál. Hún notar hugtök eins og valdaöryggi og efnahagslegt einelti til að lýsa kjarnanum í Grænlandsmálinu.
Paige segir Donald Trump vera að ganga erinda milljarðamæringa eins og Elons Musk á Grænlandi en nýlega hafi yfirvöld á Grænlandi ákveðið að semja ekki við fyrirtæki hans SpaceX um fjarskiptaþjónustuna Starlink. Hún segir Trump og Repúblikanaflokkinn þurfa stuðning Musks og fleiri milljarðamæringa í komandi þingkosningum í Bandaríkjunum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026