Öryggisógnin af kínverskum strætisvögnum
Öryggisógnir eru taldar geta fylgt kínverskum strætisvögnum. Í haust var talsverð umræða um það á hinum Norðurlöndunum og hér á landi að kínverskir framleiðendur strætisvagna sem keyptir hafa verið í stórum stíl til þessara landa gætu fjarstýrt vögnunum frá Kína í gegnum tölvukerfi.
Í þessari umræðu var meðal annars rætt um mögulegar njósnir og þjóðaröryggi en áhyggjur af slíkum pólitískum afskiptum kínverska ríkisins á Vesturlöndum í gegnum kínversk ríkisfyrirtæki hafa verið talsverðar.
Umræðan snerist meðal annars um strætisvagna frá kínverska fyrirtækinu Yutong en Strætó á 15 slíka vagna.
Rætt er við Jóhannes Rúnar Svavarsson, framkvæmdastjóra Strætó, og alþjóðastjórnmálafræðinginn Guðbjörgu Ríkeyju Thoroddsen Hauksdóttur sem er sérfræðingur í málefnum. Kína.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026