Átökin um kvennabolta ÍR
26 konur úr meistaraflokki ÍR í fótbolta hafa ákveðið að hætta í félaginu. Þær saka félagið um mismunun og metnaðarleysi fyrir kvennabolta. Nú leita þær leiða til að spila saman áfram en hjá öðru félagi. Framkvæmdastjóri KSÍ hefur boðið ÍR aðstoð við að greiða úr vandanum. Forseti hagsmunasamtaka kvenna segir stöðuna einstaka og grafalvarlega. Svo margir leikmenn yfirgefi ekki félagið að ástæðulausu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Viðmælendur: Sigríður Dröfn Auðunsdóttir, Þórdís Helga Ásgeirsdóttir, Ásta Hind Ómarsdóttir, Birta Rún Össurardóttir, Eysteinn Pétur Lárusson og Anna Þorsteinsdóttir.,
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026