Deilan um Konukot í Ármúla
Í þættinum í dag er fjallað um mál sem hefur verið til umfjöllunar í fréttamiðlum síðustu vikurnar: Flutning Konukots í fasteign í Ármúla og andstöðu heilbrigðisfyrirtækisins Sameindar við hann.
Konukot á að vera í næsta húsi við Sameind. Heilbrigðisfyrirtækið vill meina að vegna brunavarna gangi ekki að hafa Konukot í húsinu. Sameind hefur kært flutning Konukots í húsið.
Rætt er við Kristínu Pálsdóttur hjá Konukoti og Rannveigu Einarsdóttur hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Sturla Arinbjarnarson, eigandi Sameindar, vill ekki koma í viðtal um málið á meðan kæra fyrirtækisins er til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026