„Þvælan“ í Laxárdal - deilur í fjölskyldu Ásmundar Einars
Í áratugi hefur stór fjölskylda Laxárdal í Dölunum tekist á um land og yfirráð, arf og skiptingu hans. Við sögu koma skemmdarverk, hefndaraðgerðir, skítahaugar og rotnandi hræ svo eitthvað sé nefnt. Ástæðan fyrir því að málið hefur reglulega ratað í fréttir er ekki síst að í fjölskyldunni sem deilir er fyrrum þingmaðurinn og ráðherrann Ásmundur Einar Daðason.
Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í deilunum í sumar. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður Rúv á Vesturlandi, sökkti sér ofan í málið og útskýrir það á mannamáli. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026