Stríð hrossabóndans við álverið í Hvalfirði
Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi á Kúludalsá í Hvalfirði, hefur staðið í stappi við álfyrirtækið Norðurál sem rekur álverið á Grundartanga í Hvalfirði.
Ragnheiður hefur í 18 ár haldið því fram að hrossinn hennar hafi hennar veikst vegna flúormengunar frá álverinu. Hún hefur þurft að láta lóga hrossunum vegna þessarar meintu mengunar. Hrossinn sem hún hefur þurft að láta lóga eru meira en 20 talsins.
Fjallað er um sögu Ragnheiðar og þessa baráttu hennar í
heimildarmyndinni Bóndinn og verksmiðjan.
Fyrr í júní hlaut myndin verðlaun á heimildarmyndahátíð Skjaldborg á Patreksfirði. Hrafnhildur Gunnarsdóttir gerir myndina ásamt Barða Guðmundssyni.
Rætt er við Hrafnhildi um baráttu Ragnheiðar og heimildarmyndina.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026