Aðstaða og viðskipti bræðranna í FH
Fyrirtæki fyrverandi formanns FH, Best hús, fékk tæpar 400 milljónir króna frá félaginu vegna byggingar knatthúss í Hafnarfirði. Hann heitir Jón Rúnar Halldórsson og var formaður FH frá 2005 til 2019. Bróðir Jóns, Viðar Halldórsson, er formaður FH og stýrði byggingaframkvæmdum og bókhaldinu þegar knatthúsið var byggt. Hann fékk greiddar tæpar 73 milljónir króna fyrir þetta.
Hafnarfjarðarbær íhugar nú að kaupa knatthúsið og fékk Deloitte til að vinna greiningu á viðskiptunum með knatthúsið. Þar koma þessar upplýsingar fram.
Fjallað er um þetta mál og fyrirtæki Jóns Rúnars og rætt við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra í Hafnarfirði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026