Norska fordæmið: Er hægt að banna starfsmannaleigur á Íslandi?
Ellefu starfsmannaleigur í Noregi hafa stefnt norska ríkinu fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að þrjú sveitarfélög þar í landi bönnuðu starfsemi þeirra. Málið er fordæmisgefandi fyrir önnur ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), meðal annars Ísland.
Þessi málaferli eru í þættinum sett í samhengi við mikla umræðu sem var um starfsmannaleigur hér í landi í lok september og byrjun október. Sú umræða kom í kjölfar þess að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um aðbúnað manna frá Austur-Evrópu, aðallega Letta, sem vinna hjá slíkum fyrirtækjum hér á landi.
Rætt er við Halldór Oddsson, sviðsstjóra lögfræði- og vinnumarkaðssviðs hjá Alþýðusambandi um þetta fordæmi frá Noregi. Hann telur líklegt að norska ríkið verði gert afturreka með bannið. En hvað er þá hægt að gera á Íslandi til að bregðast við slæmri meðferð sumra starfsmannaleiga á erlendu vinnuafli? Halldór ræðir þetta líka.
Í þættinum í dag verður fjallað um starfsmannaleigur á Íslandi og hvort hægt sé að banna þær með lagsetningu.
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026