Valdi VG versta kostinn af þremur?: Stjórnarslitin og framtíð flokksins
Einn afdrifaríkasti atburðurinn í aðdraganda stjórnarslitanna var landsfundur VG fyrir rúmri viku. Á fundinum var samþykkt tillaga um að slíta stjórnarsamstarfinu næsta vor. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vissi því að dagar ríkisstjórnarinnar væru taldir og ákvað að slíta samstarfinu sjálfur eftir þetta. VG hafði þrjá kosti í stöðunni og valdi þennan.
Í þættinum í dag er rætt við tvo meðlimi í fulltrúaráði VG um þessa atburðarás, stjórnarsamstarfið og framtíð flokksins. Þetta eru þær Álfheiður Ingadóttir, fyrrveandi þingmaður og ráðherra, og Steinunn Rögnvaldsdóttir, sem var formaður ungliðahreyfingar flokksins á sínum. Steinunn hætti í flokknum vegna samstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn á sínum tíma en skráði sig aftur í hann fyrir skömmu. Hún lýsir því af hverju hún gerði þetta.
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026