Ungt fólk, TikTok og baráttan um Bessastaði
Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk.
Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni auk bróður síns Tómasar Bjarts, en systkinin stunda háskólanám í New York.
Eyrún Magnúsdóttir hitti Auði Ínu á heimili fjölskyldunnar á Klapparstíg, skömmu eftir hið klassíska ávarp nýs forseta af svölunum heima. Hún segir áherslu hafa verið lagða á það að skapa stemningu fyrir kosningunum hjá ungu fólki.
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026