Bakvið tjöldin á kosningavöku RÚV
Um eða yfir hundrað manns koma að Kosningavöku RÚV sem hefst klukkan tíu á laugardagskvöld eftir að kjörstöðum í forsetakosningum lokar. Stífar æfingar fyrir stóra kvöldið hafa staðið yfir alla vikuna. Undirbúningur fyir kosningaumfjöllun RÚV hófst strax í janúar, en síðastliðinn mánuð hefur allt verið sett á fullt í að tryggja að kosningavakan gefi sem besta mynd af niðurstöðum kosninga og áhorfendur fái greinargóðar upplýsingar um leið og þær berast.
Kosningavakan stendur yfir þar til ljóst er hver verður forseti, hvort sem niðurstaða fæst um miðja nótt eða að morgni.
Þetta helst leit inn á æfingu og Eyrún Magnúsdóttir ræddi við ýmsa reynslubolta kosningasjónvarpsins.
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026