Lögreglan rannsakaði fósturheimilið Gauksstaði
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn.
Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hafi gerst brotleg gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Rannsóknin hófst eftir að Barnaverndarstofa hafði sent kæru til lögreglunnar.
Lögreglan lokaði fósturheimilinu eftir að rannsóknin hófst.
Árið 2021 var rannsóknin felld niður á grundvelli skorts á sönnunargögnum.
Rætt er við Aron Eiríksson sem bjó á fósturheimilinu sem unglingur á árunum 2014 og 2015 og lögmann Arons og fleiri barna í málinu, Lilju Margréti Olsen.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026