Viðskipti Icelandair á Möltu og áhyggjur starfsfólks
Tilkynning flugfélagsins Icelandair um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í maltversku félagi Play fyrir páska hefur vakið upp áhyggjur og kallað fram spurningar hjá mörgum í starfsliði Icelandair. Þetta á við um flugmenn, flugfreyjur, flugvirkja sem og aðra starfsmenn. Meira en 3000 starfsmenn vinna hjá Icelandair og er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður landsins.
Haft var eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að þessi viðskipti gætu aukið sveigjanleikann í rekstri flugfélagsins, einfaldað hann og skapað hagfræðingartækifæri. Helsta eign þessa félags, sem heitir Fly Play Europe, er maltverskt flugrekstrarleyfi.
Áhyggjur starfsfólks Icelandair beinast meðal annars að því að flugfélagið ætli sér mögulega að hagræða í rekstrinum með því að færa eldri flugvélar í eigu félagsins yfir til Möltu og að ráða starfsfólk eins og flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja þangað til að spara sér kostnað. Í flugrekstri er þetta stundum gert í gegnum starfsmannaleigur. Icelandair hefur í gegnum tíðina ekki stundað svona rekstur í sinni starfsemi.
Forsvarsmenn helstu stéttarfélaga starfsmanna Icelandair segjast ekki hafa fengið upplýsingar um viðskiptin fyrirhuguðu frá Icelandair. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugamanna segir að fjölmörgum spurningum sé ósvarað um viðskiptin og þar til Icelandair geri það ætli félagið ekki að tjá sig um viðskiptin.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026