100 milljarða stefnan gegn Samherja í London

· Fréttir

Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og vill allt 120 milljarða króna í skaðabætur.

Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hætti haft fé af namibíska ríkinu og namibísku þjóðinni þegar fyrirtækið stundaði fiskveiðar þar á ár árunum 2012 til 2019. Katherine segir að málatilbúnaðurinn byggi á því að Samherji eigi að skila til baka þeim peningum sem útgerðarfélagið hafði af namibísku þjóðinni.

Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir að stefnan í málinu sé tilhæfulaus og að útgerðarfélagið hafi tekið til varna fyrir dómi og muni flytja málið þar.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst