Ríkið þurfi að taka þátt í bæta eftirlit með fósturheimilum
Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir að bæta þurfi eftirlit ríkisins með fósturheimilum hér á landi. Framkvæmdastjórinn, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, segir ekki gott að sveitarfélögin eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér heldur ætti eftirlit með fósturheimilunum að vera hjá ríkinu.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir ræðir við Þetta helst um nýtt frumvarp til laga um barnavernd sem nú er í umsagnarferli á Alþingi eftir 1. umræðu á Alþingi í lok mars. Þá lagði Inga Sæland, Mennta- og barnamálaráðherra, frumvarpið, fram á Alþingi.
Hún gagnrýnir frumvarpið sérstaklega út frá kaflanum um fósturheimili sem Þyrí segir að sé ekki nægilega vel unninn. Fósturheimili á Íslandi hafa mikið verið á umræðunni eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um Bakkakotsmálið í byrjun febrúar.
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026