Þess vegna var Samkeppniseftirlitið ekki hlynnt samruna Kviku og Arion
Arion banki og Kvika gáfu það út um miðjan mánuðinn að ekkert yrði af fyrirhuguðum samruna bankanna tveggja. Bankarnir höfðu átt í forviðræðum við Samkeppniseftirlitið um þennan mögulega samruna.
Samkvæmt tilkynningum frá bönkunum var ákveðið að hætta viðræðunum vegna afstöðu Samkeppniseftirlitsins til mögulegs samruna sem fram kom í forviðræðunum.
En hver var afstaða Samkeppniseftirlitsins til þessa fyrirhugaða samruna?
Frá því um miðjan mánuðinn þegar bankarnir greindu frá því að ekkert yrði af samrunanum hefur Samkeppniseftirlitið ekki tjáð afstöðu sína til hans. Þetta helst fékk Páll Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, í viðtal og spurði hann út í samrunann.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026