Undanþágurnar sem Ísland getur fengið frá ESB um fiskinn í sjónum
Í viðtali við breska viðskiptablaðið Financial Times í lok apríl sagði Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, að ambandið gæti boðið Íslandi undanþágur frá fiskveiðistefnu sambandsins til að flýta fyrir umsóknarferli Íslands að sambandinu. Álíka skýr skilaboð frá stjórnendum sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu hafa ekki komið frá þeim nýlega. Costas Kadis sagði orðrétt að klárlega væri svigrúm fyrir sveigjanleika í viðræðunum.
En hvað þýðir þetta hugtak sveigjanleiki, eða flexibility á ensku, í þessu samhengi? Í lok ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ef samþykkt verður að hefja þessar aðildarviðræður aftur í þjóðaratkvæðagreiðslunni munu þær fara í gang og semja þarf um mikilvæg mál eins og sjávarútveg.
Rætt er við lögfræðingana Gunnar Þór Pétursson. sem er sérfræðingur í Evrópurétti, og Bjarna Má Magnússon, sem er sérfræðingur í hafrétti, um hvað kunni að felast í þessum mögulegu undanþágum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026