Byggingaréttur sem verðmæt markaðsvara

· Fréttir

Pétur Ármannsson arkitekt skrifaði nýlega grein sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýndi veitingu byggingaréttar til lóðahafa hér á landi á þeim forsendum að litið væri á þennan byggingarétt sem eign viðkomandi. Hann kallaði slíka veitingu byggingaréttar ,,gjafakvóta”.

Hvað á Pétur við þessu? Rætt er við hann í þætti dagsins og gagnrýni hans sett í samhengi við bensínstöðvalóðina á Egilsgötu 5 sem fasteignaþróunarfélagið Klasi seldi með miklum hagnaði árið 2024.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsosn

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst