Þýskt stórfyrirtæki kaupir þrjá dýraspítala á Íslandi

· Fréttir

Þýska stórfyrirtækið Altano keypti þrjá dýraspítala á Íslandi í fyrra. Þetta eru dýraspítalarnir Í Glæsibæ í Skagafirði, Lögmannshlíð á Akureyri og Drösull í Kópavogi.

Altano hefur á keypt fjölmarga dýraspítala víðs vegar um heiminn á liðnum árum. Altano á í dag meira en 100 dýraspítala víða um heiminn og er með um 2600 starfsmenn. Fyrirtækið er í eigu svissnesks fjárfestingarsjóðs.

Af hverju hefur Altano áhuga á Íslandi og dýraspítölum á Íslandi? Einhverjir bændur á Norðurlandi hafa spurt sig að þessu. Rætt er við dýralækninn Gest Pál Júlíusson um Altano en hann er einn af þeim dýralæknum sem hefur selt hlut sinn í dýraspítala til þýska fyrirtækisins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst