Sagan af þyrlu Jims Ratcliffes og rörinu á kókómjólkinni

· Fréttir

Hvaða áhrif hefur það á lítið samfélag eins og Vopnafjörð á Austfjörðum þegar einn ríkasti maður heims hefur stundað fjárfestingar þar í áratug?

Þarna er rætt um Jim Ratcliffe, milljarðamæringinn enska, sem er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153 sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp á rúmlega 2200 milljarða króna. Ratcliffe er leigutaki Hofsár og Selár í Vopnafirði og eins landeigandi fjölda jarða við árnar og víðar á norðausturhorni landsins.

Rætt er við Bjart Aðalbjörnsson, rúmlega þrítugan Vopnfirðing og sveitastjórnarmann til átta ára, og Rögnvald Þorgrímsson, formann Ungmennafélagsins Einherja á Vopnafirði, um um samfélagsleg áhrif Ratcliffes í sveitinni.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst