Héraðsdómurinn í plastbarkamálinu og tregða sænska ríkisins til að greiða skaðabætur

· Fréttir

Einn af uppljóstrurunum í plastbarkamálinu svokallaða í Svíþjóð, Oscar Simonson brjóstholsskurðlæknirinn og blaðamaðurinn Bosse Lindqvist furða sig á því að sænska ríkið hafi ekki haft frumkvæði að því að greiða skaðabætur í málinu.

Þeir eru til viðtals vegna dómsins sem féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þar fékk eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans, Andemariams Beyene, Mehrawit Tesfaslase, viðurkennda skaðabótaskyldu íslenska ríkisins gegn henni og sonum þeirra þremur. Mehrawit segist vera þakklát fyrir dóminn og viðurkenningu á skaðabótaskyldunni en að hingað til hafi hún hvorki engið afsökunarbeiðni né bætur frá sænska ríkinu.

Rætt er við Mehrawit og þá Oscar og Bosse um dóminn í Reykjavík og sænskt og alþjóðlegt samhengi plastbarkamálsins sem talið er eitt stærsta hneykslismál í læknavísindum samtímans.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst