Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005

· Fréttir

Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004.

Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn.

Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er að finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið.

Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst