Sjúkrahúsið veitir loksins upplýsingar um verktakagreiðslur til lækna

· Fréttir

Fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru með verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk sem námu á bilinu 33 milljónum og niður í rúmlega hálfa milljón króna fyrir þau árið 2024. Þetta eru verktakagreiðslur ofan á önnur laun sem eru mishá eftir starfshlutfalli.

Níu læknar, eða eignarhaldsfélög þeirra og samlagsfélög í flestum tilfellum, fengu þessar verktakagreiðslur. Heildargreiðslur sjúkrahússins til þessara lækna fyrir þessi ferliverk námu rúmlega 124 milljónum króna árið 2024.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitti þessar upplýsingar eftir að fréttastofa RÚV kærði málið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál en áður en úrskurður í málinu féll.

Samningar Sjúkrahússins á Akureyri við þessa fastráðnu lækna hafa verið talsvert í umræðunni frá því síðasta haust eftir að þeim var sagt upp á þeim grundvelli að þeir væru ólöglegir.

Fjallað er um þessar verktakagreiðslur og samhengi málsins í þættinum.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst