Samhengi uppsagna og 10 milljarða arðgreiðslu Kviku banka
Kvika banki tilkynnti um uppsagnir á ellefu starfsmönnum sama daginn í síðustu viku og hluthafafundur bankans ákvað að greiða rúmlega 10 milljarða króna sérstaka arðgreiðslu út úr bankanum. Fimm stærstu hluthafar bankans eru lífeyrissjóðir.
Hvað segja lífeyrissjóðirnir um þessa arðgreiðslu og þessar uppsagnir samhliða henni?
Fjallað er um þetta og samhengi þessara arðgreiðslu en hún var ákveðin skömmu eftir að hætt var við forviðræður Kviku og Arion banka um mögulegan samruna nú í haust.
Birt eru svör frá Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, um málið sem og frá tveimur lífeyrissjóðum sem eru meðal stærstu hluthafa Kviku, Gildi og Birtu. Þá er rætt við Ara Skúlason, formann félags starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026