Hyllir undir lok stærstu mansalsrannsóknar sögunnar

· Fréttir

Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri.

Hver er staðan á rannsókninni núna og um hvað snýst þetta sérstæða mál

Rætt er við lögreglumanninn Gunnar Axel Davíðsson sem stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og frétttakonu RÚV, Urði Örlygsdóttir, sem fjallaði um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik árið 2024.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst