Gjá milli grasrótar og kjósenda?
Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og reglulega birtast niðurstöður skoðanakannana sem gefa mögulega mynd af því sem koma skal. Það sem vakti einna helst athygli í niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir DV um helgina var afstaða stuðningsfólks vinstriflokkanna sem vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins, VG og Sósíalista, en 83,3 prósent kjósenda VG ætla að segja já í ágúst og 71,6 prósent Sósíalistaflokksins. Er gjá að myndast á milli grasrótar og forystu annars vegar og stuðningsfólks hins vegar þegar kemur að Evrópusambandinu?
Rætt er við Rósu Björk Brynjólfsdóttur, formann VG, Jón Ferdínand Estherarson, formann Sósíalistaflokksins, og Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026