Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist
Barnaverndaryfirvöld fengu margar ábendingar um árabil fyrir 2019 að börn sem dvöldu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði hefðu verið beitt harðræði og ótilhlýðilegum refsingum.
Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur fóru meira að segja þangað árið 2015 og sóttu dreng sem talið að hefði verið refsað með óásættanlegum hætti. Starfsmaður hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar taldi meðal annars að hún yrði treg til að nota þetta fósturheimili aftur.
Þessar ábendingar leiddu samt ekki til þess að leyfi fósturheimilsins til að taka við börnum yrði afturkallað.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfangsmiklum gögnum um starfsemi fósturheimilsins Gauksstaða í Garði sem geymd eru á Þjóðskjalasafninu. Gögnin ná allt frá árinu 2009 til ársins 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að tæplega 20 börn höfðu lýst reynslu sinni af heimilinu og Barnaverndarstofa kærði málið til lögreglunnar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026