Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu
Kona sem tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í landinu var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fór fram í Háskóla Íslands. Konan heitir Moira Millán og tilheyrir ættbálki sem heitir Mapuche.
Moira hefur setið í fangelsi vegna þessarar baráttu sinnar og segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun. Hún býr í bæ sem heitir Corcovado í Patagoniu.
Þetta helst ræddi við hana um baráttuna við Javier Milei, forseta Argentínu, sem meðal annars vill breyta lögum um jökla landsins til að heimila námuvinnslu þar. Einnig er rætt við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku, um stöðuna í Argentínu og baráttu frumbyggja landsins við argentínska ríkið.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026