Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar

· Fréttir

Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní.

Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess að brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar.

Tvö fyrrverandi fósturbörn á Gauksstöðum gagnrýna tímaramma rannsóknarinnar í viðtölum við Þetta helst.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst