Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi
Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxandi hér á landi.
Rætt er við Sigrúnu Daníelsdóttur, sálfræðing og verkefnastjóra geðræktar hjá embættinu, og Kolbein Hólmar Stefánsson, dósent við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026