Sjálfsmorð Schraders á hafi úti
Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915.
Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi.
Í þættinum í gær var sagt frá því hvernig Schrader birtist allt í einu á Akureyri árið 1912 og dvaldi þar í góðu yfirlæti á hóteli í þrjú ár. Nafn þessa manns er heimsþekkt vegna loftventilsins sem hann bjó til, Schrader-ventilsins. Þetta er útbreiddasti ventill í heimi og er notaður á reiðhjólum, bifreiðum, flugvélum og fleiri farartækjum.
Í þættinum í dag er fjallað um afdrif Georgs Schraders og brottför hans frá Íslandi árið 1915. Rætt er við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og rithöfund, og Víði Gíslason flugmann sem er alinn upp á Akureyri.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026