Fréttirnar í viðtalinu við Björgólf Thor
Í júlí var sagt frá því að auðmaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hefði flutt lögheimili sitt frá Bretlandi til borgarinnar Mílanó á Norður-Ítalíu. Í viðtali við fréttaveituna Bloomberg sagði Björgólfur Thor frá því að skattalegar ástæður væru fyrir þessum flutningi þar sem ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefði breytt aldagömlu skattkerfi sem var hagstætt alþjóðlegum fjárfestum.
Björgólfur Thor hefur síðastliðin ár yfirleitt verið nefndur sem ríkasti Íslendingurinn og hefur verið á lista tímaritsins Forbes yfir auðugsta fólk í heimi. Hann hefur um 25 ára skeið verið einn þekktasti fjárfestir landsins.
Í viðtalinu við BJörgólf Thor voru hins vegar ýmsar aðrar fréttir en þessi. Hann sagði líka frá því að fjárfestingarfélagið Novator hefði lokað í London og að hann myndi ekki fara í neinar nýjar fjarfestingar vegna þeirrar verðmætabólu sem væri á hlutabréfamarkaði út af uppgangi gervigreindar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026