Umdeildu hafmeyjarbrotin sem enduðu sem stofustáss
Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur.
Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri.
Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026