Microsoft verði eini kúnni gagnaversins á Bakka

· Fréttir

Bandaríska stórfyrirtækið Microsoft er fyrirhugaður viðskiptavinur gagnaversins á Bakka við Húsavík sem mögulega mun rísa þar. Verkefnið var kynnt á fundi á Húsavík á þriðjudaginn.

Í umfjöllun í fréttum um þetta gagnavert hefur komið fram að alþjóðlegt fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki sem heitir Akur DC muni byggja gagnaverið og að búið sé að tryggja samning við ónafngreindan viðskiptavin.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er þessi viðskiptavinur Microsoft en stofnandi og eigandi þess er bandaríski kaupsýslumaðurinn Bill Gates sem er einn ríkasti maður í heimi. Ef gagnaverið verður byggt verður þetta í fyrsta skipti sem einn viðskiptavinur kaupir alla þjónustu tiltekins gagnavers á Íslandi.

Rætt er við Þóru Helgadóttur Frost, viðskiptaþróunarstjóra hjá Akur Capital, og Bergþór Bjarnason, sveitarstjóra í Norðurþingi, um byggingu gagnaversins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst