Skreiðarþurrkunin á Laugum og Nígeríuviðskipti Íslands
Í síðustu viku var sagt frá því í fréttum að fiskþurrkun Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit á Norðurlandi hefði lokað tímabundið. Þetta var í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem felldi niður starfsleyfi fiskþurrkunarinnar
Fiskþurrkun hefur verið rekin á Laugum frá árinu 1980, lengi undir merkjum Útgerðarfélags Akureyringa en nú er reksturinn orðinn hluti af útgerðarrisanum Samherja. Þar er eru þorskhausar meðal annars þurrkaðir og seldir til Nígeríu og kallast skreið.
Um hvað snýst þessi tímabundna lokun á fiskþurrkuninni og hversu umfangsmikil er skreiðarsala Íslendinga til Nígeríu?
Rætt er við Elvar Einarsson fiskútflytjanda frá Dalvík, Ólöfu Rún Erlendsdóttur fréttakonu og birt svör frá Samherja um fiskþurrkunina.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026