Fordæmisgildi tveggja hæstaréttardóma fyrir bókun 35
Prófessor í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík, Gunnar Þór Pétursson, segir að hæstaréttardómur sem féll í máli Önnu Bryndísar Einarsdóttur taugalæknis sendi skilaboð til Alþingis um að frumvarp um bókun 35 verði samþykkt á Alþingi og innleidd með réttum hætti í íslensk lög.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur haft á stefnuskránni að höfða mál gegn Íslandi fyrir að hafa ekki innnleitt bókun 35 með réttum hætti. Gunnar Þór telur að slíkt dómsmál þurfi ekki að fara fram þar sem Hæstiréttur Íslands hafi lagt línurnar með orðum sínum í dómunum í máli Önnu Bryndísar.
Skiptar skoðanir eru hins vegar um þetta mat á þýðingu máls Önnu Bryndísar og á bókun 35 sem slíkri. Sigríður Andersen er þingkona Miðflokksins og hefur hún tjáð sig mikið um bókunina á Alþingi. Hún er á móti frumvarpinu sem utanríkisráðherra lagði fram í síðustu viku og ætlar að berjast gegn því.
Rætt er við Gunnar Þór og Sigríði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Fleiri þættir af Þetta helst
- Ógagnsæi í íslenska dómskerfinu6. október 2026
- Baráttan um Brasilíu5. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur2. október 2026
- Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - fyrri þáttur1. október 2026
- Ástarsvikarar þrífast á einmanaleikanum30. september 2026
- Ólga vegna nýs hverfis fyrir erlent starfsfólk29. september 2026