Umræðan um sölu ríkiseignar í Laugarási

· Fréttir

Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu,

Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði.

Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð segir að það sé óvenjulegt fyrirkomulag að til standi að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti og að talsvert hafi verið rætt um málið í sveitarfélaginu.

Lækninnn og forstjóri Ríkiseigna segja að ekkert verði af sölu hússins með þessum hætti og að á endanum standi til að selja það með opnum hætti á markaði.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst