Bensín

Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun?

Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í olíuviðskiptum hjá Morgan Stanley í New York og vinnur núna hjá Íslandssjóðum, til að fara yfir alla leiðina. Frá myndun olíu djúpt í jarðlögum, í gegnum aldargamla valdabaráttu um olíulindir, og að dælunni á bensínstöðinni heima. Við ræðum hvers vegna heimsmarkaðsverð hreyfist svona hratt, hvað OPEC gerir í raun og veru, og hversu háð Ísland er þessari auðlind þrátt fyrir alla grænu orkuna okkar.

Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Brynjólfur Stefánsson

Þú veist betur

Úr hlaðvarpinu

Þú veist betur

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þú veist betur