Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin
Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið að greina slíkan náttúrulegan breytileika frá hnattrænni hlýnun af manna völdum. Við förum yfir sérstöðu Íslands í djúpsjávarmyndun heimshafanna, hvað gerðist þegar fyrsta haffræðiferðin var farin árið 1872, og hversu lítill hluti hafsins hefur í raun verið rannsakaður. Í lokin veltum við fyrir okkur hvort Íslendingar séu að forgangsraða hafrannsóknum í samræmi við það hversu mikið þjóðin á undir auðugu lífríki sjávar.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Steingrímur Jónsson