Kapítalismi

Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísland og Vesturlönd endaðu með blandað hagkerfi kapítalisma ásamt velferðarkerfi og í lokin ræðum við áhyggjuefni nútímans, vald risafyrirtækja yfir samfélagsumræðunni, takmarkaðar auðlindir jarðar, og hvort kerfið sem við búum við í dag eigi sér framtíð.

Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Gylfi Magnússon

Þú veist betur

Úr hlaðvarpinu

Þú veist betur

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þú veist betur