Augun

Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt að laga eftir tíu ára aldur.

Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er að verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar.

Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Einar Stefánsson

Þú veist betur

Úr hlaðvarpinu

Þú veist betur

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þú veist betur