Kindur

Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi?

Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til að fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsins sem íslenska féð er af og þá staðreynd að við Íslendingar höfum varðveitt stærsta erfðahópinn af honum í öllum heiminum. Ólafur segir frá forystufénu, dýrum með atferli sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni, og fer með mig í gegnum heilt æviskeið kindarinnar allt frá fengitíð til sláturtíðar. Í lokin veltum við fyrir okkur framtíð sauðfjárræktarinnar, hvort ullin gæti leyst gerviefni af hólmi, hvernig fjörubeit dregur úr metanlosun, og hvers vegna erlendir aðilar eru farnir að sækjast eftir íslensku erfðaefni.

Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Ólafur Dýrmundsson

Þú veist betur

Úr hlaðvarpinu

Þú veist betur

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þú veist betur