Tveggja Turna Tal

Tveggja Turnatal

Sports

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

#65 Björn Daníel Sverrisson part II

Þáttur vikunnar er seinni hluti spjallsins við Björn Daníel Sverrisson. Björn Daníel er þjálfari, leikmaður, tónlistarmaður og lífskúnsner!

#64 Aron Baldvin Þórðarson

Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði!

#63 Andri Freyr Hafsteinsson

Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni. Andri Freyr hefur þjálfað hjá Stjörnunni, KR og FH á höfuðborgarsvæðinu, en býr í dag á Stykkishólmi þar sem hann rekur vefsíðuna aperformance.net, sem býður upp á þjónustu fyrir félög, þjálfara og leikmenn. Við Andri fórum vítt yfir sviðið. Hvernig er hægt að þjálfa 100 stráka í 4. flokki og gera það faglega? Hvernig leysir maður flækjustigið í því að halda úti 2. flokksstarfi kl. 20:45 í febrúar? Eru leikmenn of oft meiddir á undirbúningstímabilinu og af hverju? Þetta er þáttur fyrir þjálfara, foreldra, stjórnendur og alla sem vilja skilja betur hvað fagleg uppbygging í íslenskum fótbolta krefst. Turnarnir eru í afar nánu og góðu samstarfi við nokkra góða aðila: Hafið Fiskverslun Lengjan Spíran Dave & Jones Budvar World Class

#62 Björn Daníel Sverrisson

Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta. Samstarfsaðilar Turnanna eru: Hafið FIskverslun Lengjan Budvar Dave&Jones Valitor Ferðaskrifstofa Spíran World Class

#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness

Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins. Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.

#61 Milan Stefán Jankovic

Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!

#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum

Andri Geir kom í heimsókn og við ræddum svikahrappa, drullusokka og leikmenn sem hefðu getað nýtt hæfileikana sína betur!

#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992

Evrópuævintýri Dana sumarið 1992 í Svíþjóð er merkileg saga. Krissi veit meira um knattspyrnusögu daga en Sacchi um 442 leikkerfið. Njótið vel!

#60 Dagbjartur Sigurbrandsson

Dagbjartur varð á dögunum Íslandsmeistari í golfi, eingöngu 22 ára gamall. Hann er þrátt fyrir ungan aldur útskrifaður úr háskóla í Bandaríkjunum og stefnir á að verða atvinnumaður í golfi á næstunni. Við fórum yfir hvernig þetta byrjaði, hvað er í gangi hjá honum og hvert hann er að fara!

#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar

Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!

Þér gæti líka líkað...