Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka
Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu.
Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri.
Í dag helgar Kristján líf sitt því að hjálpa öðrum mönnum að snúa við blaðinu og vinnur meðal annars með Tolla að því að ná til þeirra sem eru enn fastir í sama vítahring.
Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar.
Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.
Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369
Úr hlaðvarpinu
Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnarFramleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag
Fleiri þættir af Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar
- Sería 2 Þáttur #3: Jón Ferdínand Estherarson: Kerfi sem bregst þarf að breyta21. ágúst 2026
- Sería 2 Þáttur #2: Móðir, barn og kerfi án svara14. júlí 2026
- Sería 2 #1 Þáttur - Það er auðvelt að tala um börnin fyrst.26. júní 2026
- Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt25. apríl 2026
- Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást10. apríl 2026
- Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann2. apríl 2026






