Sería 2 Þáttur #3: Jón Ferdínand Estherarson: Kerfi sem bregst þarf að breyta

· Samfélagið, Andleg málefni

þriðja þætti annarrar seríu ræða Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen við Jón Ferdínand Estherarson, formann Sósíalistaflokks Íslands og virkan talsmann leigjenda.
Jón F. segir frá reynslu sinni af fátækt og lífinu á jaðrinum, kvíðakastinu sem hann fékk 22 ára og ákvörðuninni um að snúa við blaðinu. Hann ræðir einnig vini sem fóru aðra leið og hvað geti ráðið úrslitum þegar ungt fólk stendur á krossgötum.
Samtalið færist síðan yfir á stöðu barna, fátækt, húsnæðisóöryggi, leigumarkaðinn og pólitíska ábyrgð. Hvar á að grípa inn í áður en vandinn verður óviðráðanlegur? Hver ber ábyrgð þegar barn fellur á milli kerfa? Og hvaða raunhæfu breytingar þarf að gera svo fólk fái aðstoð áður en allt er komið í óefni?
Þetta er hreinskiptið samtal þriggja manna sem eru ekki sammála um allt en sammála um grundvallaratriðið: Kerfið er ekki að virka sem skyldi og lausnirnar skipta meira máli en að vinna rökræður.
Týndu Strákarnir er hlaðvarp um börn og ungmenni sem kerfið nær ekki utan um, fólkið sem berst fyrir þeim og ábyrgð þeirra sem hafa vald til að breyta stöðunni.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Úr hlaðvarpinu

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag

Allir þættir

Fleiri þættir af Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar