Sería 2 Þáttur #4: Hvert fara peningarnir og hver hjálpar börnunum?

· Samfélagið, Andleg málefni

Hvert fara peningarnir og hver ber ábyrgð á því að hjálpin skili sér?
Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen eru mættir aftur og ræða barnavernd, meðferðarmál og forgangsröðun stjórnvalda. Við förum yfir svörin sem okkur bárust frá Barna og fjölskyldustofu og ræðum hvort þau svari spurningum okkar um verklag, eftirlit og ábyrgð.
Jón segir frá reynslu sinni af því að leita hjálpar fyrir son sinn og koma kvörtunum á framfæri. Við ræðum brunann á Stuðlum, lyfjagjöf í neyðarvistun og upplýsingagjöf til foreldra. Hvert geta aðstandendur leitað þegar þeir telja að kerfið sem á að vernda barnið þeirra bregðist?
Við tökum líka fyrir kostnað við vistunarúrræði, tengsl skaðaminnkunar og meðferðar og stuðning við fólk sem vill komast út úr neyslu.
Hvað gerist þegar einstaklingur er tilbúinn að þiggja hjálp en kemst ekki að? Og hvernig styðjum við starfsfólkið sem reynir að hjálpa en rekst sjálft á lokaðar dyr?
Við köllum eftir skýrum svörum, ábyrgð og lausnum. Hefurðu reynslu, gögn eða ábendingar sem eiga erindi í umræðuna?
Hafðu samband við Týndu Strákana á Facebook eða Instagram.
Við tölum hreina íslensku.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Úr hlaðvarpinu

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag

Allir þættir

Fleiri þættir af Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar