Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi
Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér.
Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar).
Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadal og hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni.
Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.
Fleiri þættir af Úti
- Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)23. september 2026
- Róbert Marshall og meira úti2. september 2026
- Birta & Emil - Allir í skátana!5. ágúst 2026
- María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift22. júlí 2026
- Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið8. júlí 2026
- Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára24. júní 2026
